Sérfræðingur; iPad 2 ekki fyrr en í Júní

Asískur sérfræðingur telur iPad 2 ekki koma á markaðinn fyrr en í Júní sökum seinkunar vegna hönnunarbreytingu frá Apple á síðustu metrunum.
Í grein frá BusinessWeek kemur fram að samkvæmt Yuanta Securities Co. komi iPad 2, sem upprunalega átti að koma á markað í Apríl, tveimur mánuðum of seint og komi því ekki fyrr en í Júní. Seinkunin á að vera sökum flöskuháls í framleiðslu sem varð til vegna þess að Apple hafi á lokasprettinum breytt útlitshönnun iPad´sins. Apple nær þess vegna ekki að framleiða nógu mörg eintök fyrir Apríl.
Ef þetta er satt kveikna upp áhugaverðar spurningar. Fyrst og fremst, hvaða útlitshönnun var breytt. Hefur Apple (eins og með iPod Touch) fjarlægt eiginleika á síðustu metrunum eða jafnvel bætt við eiginleika. Hvað sem það nú er hlýtur það að vera eitthvað mikilvægt fyrst þeir velja að seinka iPad´num um tvo mánuði. iPad er í dag ráðandi á spjaldtölvumarkaðnum og átti iPad 2 að reykspóla yfir keppinautana. Tveggja mánaða seinkun gæti gefið Android spjaldtölvum fótfestu á markaðnum.
Það er erfitt að segja til um hvort upplýsingarnar séu réttar. Allt bendir nú til þess að nýr iPad líti dagsins ljós í Apríl, ári eftir að fyrsti iPad´inn kom á markaðinn, en hins vegar gæti alveg verið að seinkun verði á iPad 2. Gallinn við að vera með uppfærslu á 12 mánaða fresti er að þá verða seinkanir mjög sýnilegar á meðan t.d. seinkanir á Mac tölvunum ekki sjást eins greinilega.
Hvort sem orðrómurinn reynist réttur eða rangur kennir þetta okkur að ákveða ekki kaup (eða að bíða með kaup) vegna útgáfu einhvers tæki. Maður á að fjárfesta i tækjunum þegar maður þarf á þeim að halda (langar í þau) og ekki bíða eftir að næsta græja komi því biðin gæti orðið löng.

Wall Street Journal: Apple pantaði iPhone-skjái sem eru a.m.k. 4″
iMac og Macbook Air með “retina-skjá”
Allar upplýsingar um nýju Macbook Pro tölvuna
Ashton Kutcher í einkennisklæðnaði Steve Jobs
Orðrómur: Apple hyggst kaupa sjónvarpsframleiðandann Loewe

