Apple-TV verður sennilega bráðum að leikjatölvu.

Í iOS 4.3 beta eru nokkrir hlutir sem benda til þess að Apple ætli sér að bæta leikjatölvumöguleika í AppleTV.
Í síðustu útgáfu af iOS stýrikerfinu (4.3 beta) hafa fundist hlutir sem benda til þess að Apple ætli að bæta leikjatölvumöguleikanum í AppleTV. Þarna má nefna hluti tengda “ATVGames” og “ATVThunder” (sem benda á einhvers slags leikjafjarstýringu), “high-score” lista (Game Center), og App Store.
Í nýjustu útgáfu AppleTV sem kom út í haust má finna sama örgjörfa og í iOS tækjunum sem og sama stýrikerfi (þó með takmörkunum). Því er í raun ekkert sem stendur fyrir því að hægt sé að spila leiki á AppleTV. Reyndar reiknaði undirritaður með að Apple myndi bæta leikjamöguleikanum í AppleTV fyrir útgáfu þess en svo varð ekki þrátt fyrir upplagt tækifæri. Allt er annars klárt. App Store hefur sýnt sig að vera lykilatriðið bæði fyrir iPhone og nú einnig Mac. Ef hægt er að nota i-tækin sem fjarstýringu er það aðeins græna ljósið frá Apple sem stendur í vegi.
AppleTV er aðeins með 8GB harðann disk, enda hugsað sem græja sem maður streymir í og því má vænta að sama gildi fyrir leiki. Kannski að það sé smáatriðið sem Apple hafði ekki unnið til enda í haust.
En því að láta leikina duga? Nú þegar græjan er í stofunni, tengd við sjónvarpið væri hægt að nota hana sem netvafra. Möguleikarnir eru endalausir eins og við höfum séð á bæði iPhone og iPad. Ef Apple tekur skrefið varðandi smáforrit á AppleTV erum við komin allan hringinn með sama “koncept” á öllum tækjunum með App Store sem tengiliðinn.

Wall Street Journal: Apple pantaði iPhone-skjái sem eru a.m.k. 4″
iMac og Macbook Air með “retina-skjá”
Allar upplýsingar um nýju Macbook Pro tölvuna
Ashton Kutcher í einkennisklæðnaði Steve Jobs
Orðrómur: Apple hyggst kaupa sjónvarpsframleiðandann Loewe

